Shamballa eða Reiki?

Við hjónin höfum kennt shamballa mdh frá árinu 1998.

Reynsla okkar er sú að shamballa mdh sé margfalt öflugra en reiki og margar aðrar heilunarleiðir sem fólk hefur farið í þróun sinni sem andlegar verur. Ástæðan er ekki síst sú að notaðar eru mjög áhrifaríkar hugleiðslur og að megin áherslan er á sjálfseflingu einstaklingsins.

St-Germain3

 

Styrking tengingar við æðra sjálfið og Guðsjálfið er einnig afar mikilvægt. Margir Reiki meistarar sem farið hafa í gegnum shamballa mdh lýsa því hversu miklu kröftugri alheimsorkan er sem flæðir í gegnum þá eftir námskeiðið og frelsið sem þeir finna til.

Kjarninn að shamballa er kærleikur, kærleikur og frelsi. Að elska sjálfan sig og innri vitneskja um tengingu sjálfrar þín við móður föður Guð og alla sköpunina. Frelsi frá öllu sem stendur í vegi fyrir þeirri vitneskju. Frelsi til vita hver þú ert og til að standa í eigin mætti og vera þinn eigin Herra.

Á shamballa námskeiðum upplifa nemendur hugleiðslur sem eru hannaðar til að hjálpa við að hreinsa burt allt tilfinningalegt rusl sem einstaklingur hefur borið gegnum marga líftíma. Síðan fyllir viðkomandi orkusvið sitt af shamballa orkunni og tengir við uppsprettu shamballa orkunnar svo hann geti hvenær sem er kallað á hana.Megin tilgangur þessara hreinsana og samstillinga er þróun Sjálfsins og sjálfsefling.

Nemandinn gerir þeim sem á eftir koma auðveldara fyrir að fylgja í fótspor hans. Hann hjálpar hópvitund og undirvitund mannkyns til að eflast og vaxa í kærleika.

Sem hliðar bónus þá getur hann kallað á shamballa orkuna til að hjálpa sér við að aðstoða aðra og sjálfan sig við heilun.

Hinn uppljómaði meistari Germain hefur sannfært okkur um að Shamballa orkan sé nú hluti af orkuneti sem umlykur Jörðina og við getum tengst hvenær sem við viljum eða þurfum.Uppruni Shamballa kerfisins liggur í forsögu okkar. Germain lifði á tíma Atlantis og það var þá sem hann opnaði fyrir og setti í gang upprunalega kerfið til að hjálpa verum með mjög lága tíðni sem voru notaðar sem þrælar á þeim tíma til að þróast. Hann vildi gera þetta þrælahald óásættanlegt og frelsa þessar verur úr fjötrum vanþekkingar.

Kerfið eins og það er í dag hefur tekið miklum stakkaskiptum því við búum nú þegar við mun hærri orkutíðni en var í Atlantis. Tilgangurinn er þó svipaður þ.e. að frelsa okkur úr fjötrum vanþekkingar, að hjálpa okkur að standa í kærleika og frelsi okkar eigin máttar.

Hvað þýðir svo að vera eigin Herra (meistari) ? Það þýðir ekki að þú ráðir yfir öðrum. Það þýðir einfaldlega að þú ert sjálfs þíns Herra rétt eins og sérhver sannur meistari mun segja þér.Shamballa er ekkert annað en hópvitund allra hinna uppljómuðu meistara og vetrarbrautar meistara.

Þessi samstilling er nú til reiðu fyrir okkur þar sem við opnum hinn kristallaða orkugrunnmassa í orkusviði okkar fyrir móttöku. Þessi demants tíðni Shamballa hefur afar fágaða og mjög umbreytandi tíðni með verulega græðandi áhrif.

Vígslur eða samstillingar við þessa orku leyfir okkur aðgang að nýjum kóðum sem nú er hlaðið niður gegnum miðstöðvar vetrarbrautarinnar til að jafna og koma á samhljómi milli mannkyns og ómunar Jarðar svo við getum orðið einn sameinaður hljómur. Þegar þú hefur tekið við þessum nýju kóðum og byrjar að vinna með og í demants tíðninni muntu auka fjölvíða meðvitund þína, þróa dulskyggni, dulheyrn og aðra dulskynjun.

Nú er rétti tíminn til að losna undan óþörfum forritum úr fortíðinni og undirbúa móttöku hinnar nýju orku. Við erum að fara að meðskapa hér á Jörðu hreint ótrúlega hluti. Þér er boðið að vera með hverja stund og njóta dansins til enda.

Til að virkja orkuna eftir samstillingu þarftu aðeins að hugsa eða segja Shamballa á .Þú þarft ekki að slökkva á orkunni hún stöðvast sjálfkrafa þegar hún hefur unnið sitt verk. Engin þörf er fyrir flókið ferli.

Orkan fer þangað sem hennar er þörf og hendur þínar þangað sem þær vilja fara. Þér eru allir vegir færir. Allir eru verðugir.

Ég, Germain óska þér til hamingju og það gera einnig vetrarbrautar meistararnir fyrir einbeitingu þína, hugrekki, óttaleysi og við hvetjum þig til að nýta þessa orku til að standa í eigin mætti og vera ÞÚ.

Namaste Germain


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Shamballa MDH

Höfundur

Lilja Petra Ásgeirsdóttir
Lilja Petra Ásgeirsdóttir
Ég er Shamballa MDH meistari og hef kennt shamballa kærleiks og sjálfseflingar námskeið á Íslandi, Evrópu og Afríku frá 1998 ásamt manni mínum, Erlendi Magnússyni. Ég er einnig heildrænn heilsuráðgjafi og höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • hari das baba white
  • n719607009 1110518 633
  • basicteachers cameroon
  • baba5
  • baba7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband